Framþróun og rannsóknir
Við tökum þátt í rannsóknarverkefnum í samstarfi við háskóla, rannsóknarstofnanir og aðrar deildir innan Livio-samsteypunnar. Því kann að koma til þess að við óskum eftir þátttöku skjólstæðinga okkar í rannsóknum sem miða að því að auka þekkingu á frjósemi og ófrjósemi.
Markmið rannsóknanna er að finna nýjar leiðir til að bæta meðferðir, auðvelda ferlið fyrir skjólstæðinga og auka líkur á góðum árangri.
Sem stendur tökum við þátt í alþjóðlegri rannsókn sem kannar áhrif gulbússtuðnings (prógesteróns) við uppsetningu frystra fósturvísa. Markmið rannsóknarinnar er að meta hvort gulbússtuðningur auki líkur á að meðferð leiði til fæðingar barns.
Árin 2018 til 2021 tókum við þátt í umfangsmikilli rannsókn á notkun hikmyndatækni við ræktun og mat á fósturvísum. Markmið rannsóknarinnar var að meta hvort hikmyndatækni gæti bætt val á fósturvísum með því að auðvelda ákvörðun um hvaða fósturvísar væru líklegastir til að leiða til þungunar eftir glasafrjóvgun, samanborið við hefðbundið mat fósturfræðinga. Hægt er að nálgast niðurstöður hér.